Fara beint í Meginmál

Halli á viðskiptajöfnuði 120,3 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi 2026. Hrein erlend staða batnar 3. september 2026

Á öðrum ársfjórðungi 2026 var 120,3 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd eða 9,3% af landsframleiðslu og versnaði um 91,4 ma.kr. milli ársfjórðunga og er lakari sem nemur 4,4 ma.kr. miðað við sama fjórðung árið 2025. Vöruskiptajöfnuður mældist neikvæður um 154,4 ma.kr. en 66,6 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði  (Sjá á vef Hagstofunnar).  Halli af frumþáttatekjum var 18,0 ma.kr. og 14,5 ma.kr. á rekstrarframlögum. (tafla 1).

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit yfir greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2026 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Tafla 1: Greiðslujöfnuður

Ma.kr.2025/22025/32025/42026/12026/2

Viðskiptajöfnuður

-115,9

27,8

-34,5

-28,8

-120,3

   Vöruskiptajöfnuður

-128,1

-101,7

-73,5

-23,0

-154,4

   Þjónustujöfnuður

61,9

149,3

52,5

33,4

66,6

   Jöfnuður frumþáttatekna

-32,8

0,5

6,2

-19,1

-18,0

   Rekstrarframlög, nettó

-16,8

-20,4

-19,8

-20,1

-14,5

Jöfnuður fjárframlaga

-1,0

160,7

-1,3

-1,0

-1,2

Fjármagnsjöfnuður

-62,5

190,6

-15,1

24,1

-12,7

   Bein fjárfesting

-12,2

91,4

9,5

-27,4

15,0

   Verðbréf

-95,5

20,8

-50,2

7,8

-65,4

   Afleiður

-1,1

-3,9

0,6

-0,7

1,6

   Önnur fjárfesting

0,5

59,7

11,7

55,3

18,0

   Gjaldeyrisforði

45,8

22,7

13,2

-10,9

18,2

   Skekkjur og vantalið, nettó

54,3

2,2

20,7

53,9

108,8

Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 2.408 ma.kr. eða 46,9% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 351 ma.kr. eða 6,8% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 7.448 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 5.040 ma.kr. Erlendar eignir jukust um 124 ma.kr. og skuldir um 137 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta. Gengis- og verðbreytingar juku virði eigna á ársfjórðungnum um 420 ma.kr. og skulda um 24 ma.kr. og leiddu því til 397 ma.kr. betri hreinnar erlendrar stöðu. Gengi krónunnar lækkaði um 0,5% á fjórðungnum miðað við gengisskráningarvog. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum hækkaði um 13,3% milli fjórðunga og verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði hækkaði um 0,2%.

Tafla 2: Breyting á erlendri stöðu þjóðarbúsins á milli ársfjórðunga

Ma.kr.Staða í lok 2026/1FjármagnsjöfnuðurGengis- og verðbreytingarAðrar breytingarStaða í lok 2026/2

Erlendar eignir, alls

6.920

124

420

-16

7.448

   Bein fjárfesting

895

9

5

-15

893

   Verðbréf

4.163

24

411

0

4.597

   Afleiður*

21

2

-10

0

13

   Önnur fjárfesting

896

72

5

-1

972

   Gjaldeyrisforði

944

18

10

0

973

Erlendar skuldir, alls

4.862

137

24

17

5.040

   Bein fjárfesting

1.967

-6

13

1

1.975

   Verðbréf

1.687

89

8

0

1.785

   Afleiður*

17

0

-3

0

14

   Önnur fjárfesting

1.191

54

5

16

1.266

Hrein staða þjóðarbúsins

2.057

-13

397

-33

2.408

(%) af VLF 

40,0%

-0,2%

7,7%

-0,6%

46,9%

*Aðrar breytingar eru taldar undir gengis- og verðbreytingum fyrir afleiður.

Talnaefni um greiðslujöfnuð má nálgast hér.

Talnaefni um erlenda stöðu þjóðarbúsins má nálgast hér.